ALLTPLAST/BÍLPLAST.
Á síðunni alltplast.net er hægt að fá tilboð í hversskonar jeppabreytingar. Við erum í samstarfi við nokkra reyndustu fagaðila í jeppabreytingum á landinu, flottustu bílamálarana og erum að athuga með dekkja og felgu innflytjendur. Einnig er hægt að finna allskonar trefjaplastvörur sem hægt er að láta steypa fyrir sig. Er einnig með trefjaplastmót til leigu fyrir þá sem geta steypt sjálfir. Við seljum efni og einnig er hægt að fá kennslu fyrir þá sem vilja. Við getum einnig útbúið mót eftir pöntunum.
Það eru yfir 1000 tiltæk mót af allskonar vörum sem tengjast flestar bílum og þá breyttum jeppum aðallega. þessi mót koma úr ýmsum áttum og má þar nefna Bílplast sem rekið var lengst af á Vagnhöfðanum, Alltplast sem rekið var lengst af í Kænuvoginum og einnig koma mót utan af landi t.d. frá Blönduósi, Vík, Selfossi og Stokkseyri. Brettakantar fyrir breytta jeppa eru í aðalhlutverki og einnig boddýhlutir allskonar, t.d. er hægt að fá hjá okkur mót fyrir willysboddý í heilu lagi, eða stykki og stykki. Einnig húdd, frambretti og aðra boddýhluti í ýmsar tegundir jeppa, fólksbíla og einnig vörubíla. Vindkljúfar á sendi- og flutningabíla eru til í úrvali, háir toppar á húsbíla, og hlutir fyrir mótorhjól, vélsleða, púlkarar fyrir gönguskíðafólk, sæþotur, flugvélar, tjaldvagna, fellihýsi og kerrur er einnig að finna hjá okkur. Og svo eru til mót af allskonar hlutum sem enginn hefur hugmynd um hvað er?? Við munum fljótlega birta myndir af þeim mótum og efna til getraunar með veglegum vinningum. Einnig getum við sérsmíðað hvað sem er allt eftir óskum viðskiptavinarins og þá erum við einnig með tæki fyrir einfalda járnsmíða- og trésmíðavinnu auk þess sem við reynum að sinna breytingum og viðgerðum. Það er bifreiðasmiðurinn Björgvin Kristinsson sem sér um og rekur þessa þjónustu. Eins og stendur erum við á nokkrum stöðum með herlegheitin til að mynda í 400 fermetra skemmu við Straumsvík en einnig er afgreiðsla á Tangarhöfðanum en það er opið þar eftir samkomulagi. Meðlimir f4x4 fá afslátt af öllum vörum staðgreitt.
Síminn er 845-3844 eða 856-2422.
Sendið póst á bilplast@visir.is ef ætlunin er að leigja mót.
ATH. brettakantamót á nýjustu bílana eru ekki til leigu.
Tangarhöfði, Reykjavík
Sími: 8453844
GSM: 8562422
Veffang
http://www.alltplast.net